21/05/2026
Elskum spennandi nýjunga 🤩 GINSENG MICROSHOT, microneedling-innblásna serumið frá Erborian 💖💖
Í fyrsta sinn sækir Erborian innblástur í kóreska micro-infusion tækni með spicules-örögnum í nýja Ginseng Microshot seruminu sínu.
Ný kynslóð af serumi sem er þróað til að umbreyta húðinni sýnilega á aðeins 7 dögum, með öflugri blöndu af ginseng, kollageni og micro-infusion tækni ✨
Fæst í tveimur styrkleikum eftir reynslu og þörfum húðarinnar:
– 0,1%: fyrir byrjendur
– 0,3%: fyrir reyndari notendur
Mælt er með að innleiða serumið smám saman í húðumhirðurútínuna til að hjálpa við að slétta húðáferð og bæta útlit húðarinnar.
-Ef húðin þín er ekki vön sterkum eða virkum húðvörum (eins og exfolierandi vörum eða peeling-meðferðum), er best að byrja á 0,1% 🩶