Andleg vegferð

Andleg vegferð Eigandi og starfsmaður Andlegrar vegferðar er Dagbjört Þórðardóttir. Hún er ferðamálafræðingur og sjúkraflutningamaður að mennt.

Spiritual Journey | Healing with Dagga

Reiki • Trance Healing • Past Life Regression
Transform your energy & life ✨
💫 Book an online session now 🌍

www.andlegvegferd.is
Insta: Auk þess náms hefur Dagbjört lært grunninn í jarðfræði og verkefnastjórnun og lokið alls kyns námskeiðum. Dæmi um námskeið sem hún hefur lokið eru Diplóma of professional study í dáleiðslu sem meðferðarúrræð

i, Usui Reiki level 1, 2 og master level 3, Sound therapy and sound healing og Neuroplasticity: How to rewire your brain. Sumrin 2014 og 2015 lenti Dagnjört í háorku slysum og fór í kjölfarið að upplifa mikla áfallastreitu. Á þessum tíma starfaði hún á sviði birgðastýringar hjá flugfélagi og var farin að finna fyrir einkennum kulnunar, án þess þó að gera sér grein fyrir því. Flugfélagið var á sama tíma að flytja alla starfsemi sína úr landi og bættist því vanlíðan vegna fjöldauppsagna við einkenni kulnunar, áfallastreitu, já og auðvitað ADHD.



Haustið 2015 var Dagbjört komin í andlegt og líkamlegt þrot og sá ekki lengur tilgang með lífinu. Hún var sem betur fer gripin af fjölskyldu og vinum sem leiðbeindu henni í átt andlegrar og líkamlegrar uppbyggingar í formi veikindaleyfis og uppbyggingar með VIRK. Hún áttaði sig fljótlega á því að ef að andleg líðan er ekki í lagi þá er ekkert annað í lagi og varð því heltekin af andlegum málefnum, svo sem hugleiðslu, dáleiðslu, orkuheilun og það að geta sett sig í spor annarra til að skilja hvaðan hegðun þeirra/líðan kemur. Nú tíu árum síðar (sumarið 2024) er Dagbjört búin að stofna fyrirtækið Andleg vegferð en markmið þess er að hjálpa fólki sem líður ekki nógu vel andlega og vill bæta þá líðan. Hjá Andleg vegferð er boðið upp á dáleiðslumeðferðir og Reiki orkuheilun. Í byrjun desember verður opnað fyrir ásetningar á gel nöglum.

Frá einni vinkonu til annarrar:“Þú ert nóg, nákvæmlega eins og þú ert” 🫰🏽
02/06/2026

Frá einni vinkonu til annarrar:
“Þú ert nóg, nákvæmlega eins og þú ert” 🫰🏽

27/05/2026

Ég er ekkert eðlilega stolt vinkona! 😍 Innilega til hamingju með Grímuna fyrir búninga ársins elsku Eva Björg 😍😍😍

Algjörlega fullkominn dagur að kveldi kominn 🙏🏽 Við Álfheiður ( ) gengum upp Ingólfsfjallið frá námunni og svo áleiðis a...
20/05/2026

Algjörlega fullkominn dagur að kveldi kominn 🙏🏽 Við Álfheiður ( ) gengum upp Ingólfsfjallið frá námunni og svo áleiðis að toppnum og til baka 🙌🏽 Við erum báðar að æfa okkur fyrir göngu á 5VH í ágúst 👏🏽 Orri minn og Lúna komu að sjálfsögðu með ásamt Coco Channel, sem er hjá mér í pössun ( ) og Stebba og Kai hennar Álfheiðar 🥰 Við fórum þetta hægt og stöðugt og þar sem ég var að fá svona fínan hundabakpoka þá prófaði ég að bera alla hundana nema Kai - og skundum tvo í einu 🐶🐶 Allt var það kallað æfing með “þyngdir” (nokkur auka grömm.. 😝) fyrir gönguna í ágúst 😁 Og hver veit nema Orri og Lúna verði orðin 5VH hæf þegar að því kemur og ég taki þau með - já og auðvitað nýja burðapokann svona just in case 😁 Við fórum rúma 6 km á nánast jafn löngum tíma, en það var nú fyrirfram ákveðið að taka góðar sólbaðspásur og njóta 🥰☀️ Eftir gönguna fóru hundarnir í “hvíldarinnlögn” og við skelltum okkur í pottinn með Söru, dóttir Álfí. Kvöldið endaði svo með grilluðum sykurpúðum og skemmtilegum spjall-leik hjá okkur þremur 🥰
Takk alheimur fyrir þennan dag, sólina og félagsskapinn ❤️☀️🐶

13/05/2026

Ég sat dáleidd í lengri tíma að horfa á vindinn dansa við reykinn 🤩

🫶🏽Sendu mér skilaboð til að panta tíma í fyrrilífa dáleiðslu eða heilun 🫶🏽

Það þarf ekki allt að líta eðlilega út til að vera góð lausn 🦄Í dag fór ég aðeins út fyrir þægindarammann og ákvað að hæ...
10/05/2026

Það þarf ekki allt að líta eðlilega út til að vera góð lausn 🦄

Í dag fór ég aðeins út fyrir þægindarammann og ákvað að hætta að pæla í því hvernig eitthvað lítur út og hlusta frekar á hvað hentar mér, líkamanum mínum og sálinni minni í raun og veru 👏🏽😎🥰

Sem smáhundapassari hef ég oft fundið fyrir því hvað það getur verið yfirþyrmandi að fara út að labba með fleiri en tvo hunda í taum, sérstaklega í rigningu og roki. Í dag vildi ég samt hreyfa mig, gefa hundunum skynörvun og komast út án þess að gera allt extra erfitt fyrir mig 🫶🏽

Þessi lausn lookar kannski smá skrítin… og já, ég veit að ég looka sem skrítna konan á Selfossi 😅 — en veistu, hún virkar ofsa vel fyrir mig á svona dögum 🙏🏽
Hundarnir haldast þurrir, ég fæ hreyfingu, þeir fá ferskt loft og skynörvun, og ég þarf ekki að koma heim með allt út í drullu og bleytu.

Stundum felst sjálfsvirðing ekki í því að gera hlutina eins og allir aðrir heldur í því að finna leið sem styður raunverulega við taugakerfið, orkuna og lífið manns sjálfs.

Og þegar maður finnur lausn sem hjálpar þá má kona bara alveg rokka hana 🥰😎🦄

Þetta er my kind of skvís-up! Hárið létt úfið, léttur farði samt ekki, ullarpeysa, regnjakki og gönguskór 😁🥰
01/05/2026

Þetta er my kind of skvís-up! Hárið létt úfið, léttur farði samt ekki, ullarpeysa, regnjakki og gönguskór 😁🥰

18/04/2026

Uppáhalds staðurinn minn á Jörðu er á pallinum heima í blíðviðri með loðbörnunum mínum 🙏🏽❤️ Og ekki skemmir fyrir þegar önnur góð dýr eða gott fólk joina okkur 🫰🏽🫰🏽

14/04/2026

Núvitundaræfing í pottinum í dag í hellirigningu með þessar fínu regnhlífar 😎😁 Rigningarhljóð, slakandi tónlist, hiti í kroppinn og bestu mýslurnar mínar með ❤️🫰🏽🫶🏽

Sjáið alla fínu kristalana mína 😍 Það er gaman að segja frá mví að ég kláraði áfangana Steindafræði og Bergfræði back in...
29/03/2026

Sjáið alla fínu kristalana mína 😍
Það er gaman að segja frá mví að ég kláraði áfangana Steindafræði og Bergfræði back in the days þegar ég var í jarðfræði í HÍ - en ég get ÓMÖGULEGA sagt ykkur kristöllunarferli þessarra kristalla/steinda, hvað þá hvað þeir heita 🤭 Núna er ég bara orðin “klikkuð steinakelling” sem notar þá í andlegum tilgangi 😁

Kveðja fá fölustu manneskjunni á Spáni svona í tilefni dagsins ❤️ Mamma litla liggur lærbrotin á spítala hér úti þannig ...
14/02/2026

Kveðja fá fölustu manneskjunni á Spáni svona í tilefni dagsins ❤️ Mamma litla liggur lærbrotin á spítala hér úti þannig að þar verður spa trídment A la Daybright á okkur 🙌🏽😁 Andlits- og fótamaskar, nudd, brúnkukrem og súkkulaði 🥰❤️

Address

Urðartjörn 4
Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Andleg vegferð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Andleg vegferð:

Share